Helga Hlín Hákonardóttir lögmaður og einn eigandi Strategíu segir í viðtali á Hringbraut í kvöld að staða þeirra sem sitji í stjórnum fyrirtækja sé mjög óviss þegar upp koma úrlausnarmál.
Nýlegt dæmi sé þar sem Héraðsdómur dæmdi einstaka stjórnarmenn til að greiða háar sektir. Það var þegar Vátryggingafélag Íslands var í apríl dæmt í Héraðsdómi til að greiða Lífsverk lífeyrissjóði yfir 1.200 milljónir króna. Málið snerist um tvær fjárfestingar sem fyrrum stjórn og stjórnendur lífeyrissjóðsins tóku ákvarðanir um. Greiðslan er vegna trygginga gagnvart sjóðnum en málið snýr að ákvörðun fyrrum framkvæmdarstjóra og stjórnarmanna sjóðsins um afleiðusamninga fyrir hönd lífeyrissjóðsins skömmu fyrir hrun. Málinu hefur verið áfrýjað til hæstarréttar og segir Helga Hlín að það verði fordæmisgefandi og skýri ábyrgð stjórnenda.
Helga Hlín rekur ráðgjafafyrirtækið Strategíu ásamt tveimur öðrum konum með víðtæka reynslu af stjórnun. Strategía stendur að ráðstefnu á morgun undir yfirskriftinni: Hver má vita hvað?
Helga hefur frá árinu 1996 starfað á alþjóðlegum fjármálamarkaði og svo sem lögmaður stjórna og situr í stjórnum fyrirtækja eins og Wow air, Festi, Meniga, VÍS og Kaupás.