Ábyrgð seðlabankans

Doktor Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði, er formaður starfshópsins og kynnti skýrsluna í Þjóðminjasafninu í gær. Með honum í starfshópnum sátu hagfræðingarnir Ásdís Kristjánsdóttir og Illugi Gunnarsson. 

„Við lögðum gríðarlega mikla vinnu í þessar tillögur og teljum að þær séu raunhæfar,“ segir Ásgeir Jónsson, formaður starfshóps um endurmat á peningastefnu Íslands. Hópurinn kynnti tillögur sínar í gær.

Starfshópurinn leggur meðal annars til að ábyrgð Seðlabanka Íslands verði aukinn og hann taki við hluta af verkefnum Fjármálaeftirlitsins. Þá verði stjórnskipulagi Seðlabanka Íslands breytt þannig að með seðlabankastjóra starfi tveir aðstoðarseðlabankastjórar

Nánar á visir.is

http://www.visir.is/g/2018180609374/tveir-adstodarbankastjorar-og-abyrgd-sedlabankans-aukist-