Fósturvísar úr norskum Abredeen Angus holdanautakúm verða - komi ekkert óvænt upp - settir í íslenskar kýr í ágúst á þessu ári. Búið er að taka um fjörutíu fósturvísa úr holdakúm sem eru í norskri einangrunarstöð en fósturvísarnir eru undan tíu Angus kvígum og fjórum úrvals Angus kynbótanautum af sama kyni.
Nautkálfar þeir sem þá fæðast í maí árið 2018 verða árið 2019 seldir þeim bændum sem rækta holdanut og notaðir til kynbóta í hjörðunum. Fósturvísarnir fjörutíu þurfa að liggja í frosti í þrjá mánuði áður en má flytja þá til Íslands. Frá þessu er sagt í Morgunblaðinu.
rtá
Nánar ww.bbl.is hinn 5.52017