ABBA kom saman á ný á dögunum og komu fjórmenningarnir saman í hljóðveri og tóku upp tvö ný lög.
Í fréttatilkynningu frá söngsveitinni í dag segir að þau hafi komið saman í hljóðveri og þótt 35 ár séu síðan ABBA hætti hafi það verið líkt og að taka upp þráinn frá því í gær. Hvatinn til þessa er sérstakur þáttur þar sem meðlimir Abba koma fram í sýndarveruleika verður sýndur í lok árs á NBC og síðar á BBC. Annað lagið nefnist ”I still have faith in you” en hætt er við að aðdáendum sveitarinnar muni þykja langt að bíða þar til lögin hljóma.