Össur Skarphéðsson alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra spáir því í nýjum pistli sínum á Facebook að dagar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar á formannsstóli Framsóknarflokksins séu brátt taldir. Hann skorti úthald og líklega stjórnvisku sem sjáist á litlu kjörfylgi flokksins á meðan hinn stjórnarflokkurinn safni á sig kjörfitu. Össur telur tvo eftirmenn einkum koma til greina; ráðherrana Eyglóu Harðardóttur og Sigurð Inga Jóhannsson. Eygló fari sér hægt, forðist axarsköftin og bíði færis, en Sigurður sé ef til vill líklegri, enda hafi hann skapað sér nokkra sérstöðu í embætti með því að halda íhaldinu frá sér.
Á von á nýjum formanni í framsókn
Fleiri fréttir
Nýjast