Greiningardeild Arion banka spáði 25 punkta lækkun vaxta. Spár annara greiningaraðila voru ýmist um óbreytta vexti eða 25 punkta lækkun. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands (SÍ) rökstyður ákvörðun sína að miklu leiti á styrkingu gengis krónunnar sem hefur vegið á móti verðbólguþrýstingi af innlendum toga og spennu í þjóðarbúskapnum. Spá SÍ gerir þó áfram ráð fyrir lítilli verðbólgu og gengi krónunnar hefur nú þegar styrkst frá því hún var gerð. Frekari styrking krónunnar hefur því líklega skapað svigrúm til vaxtalækkunar í jún nk. Hvað verður svo í haust er erfiðara að segja til um en ekki eru horfur á stórvægilegum breytingum þá. Svigrúm sjálfbærrar gengsistyrkingar - ef það er enn til staðar - fer sífellt minnkandi enda raungengi krónunnar í hæstu hæðum. Þannig gætu vextir hækkaði lítillega í haust eða á næsta ári ef áhrif gengisstrykingarinnar taka að fjara út.
Fyrr eða síðar mun hægja á þessari gengisstyrkingu enda er raungengi króunnnar nú þegar eins og fyrr segir komið í hæstu hæðir. Greiningardeild Arion banka hefur nokkrar efasemdir um að hagkerfið getið staðið undir raungengi krónunnar þar sem það er í dag og hvað þá hvernig SÍ spáir að það muni þróast til ársins 2019. Í gengisspá SÍ er t.d. gert ráð fyrir því að raungengið miðað við launakostnað hækki um 33% á þremur árum. Þetta rýrir verulega samkeppnishæfni útflutningsgreina. Þessu tengt hefur Greiningardeila Arion einnig efasemdir um að hátt gengi krónunnar muni ekki rýra viðskiptajöfnuðinn meira en SÍ spáir. Verði það raunin að gengið sé að yfirskjóta mun þá á einhverjum tíma ganga til baka sem eykur verðbólgu - sem aftur leiðir til hækkunar vaxta. Hvenær það gerist er ómögulegt að segja til um.
rtá
Nánar www.arionbanki.is