„þið eruð á algjörum villigötum“

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og þingflokksformaður mun ekki gefa kost á sér í prófkjör flokksins fyrir næstu kosningar.

Ragnheiður Ríkharðsdóttir segist ekki leiða hugann að því núna hvort hún gæti hugsað sér að bjóða sig fram fyrir Viðreisn í næstu kosningum.  „Á þessari stundu eruð þið á algjörum villigötum“, sagði Ragnheiður aðspurð hvort að þeir sem haldi að hún fari fram fyrir nýja aflið hafi rangt fyrir sér. Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar

 „Það hefur enginn orðað það við mig hjá Viðreisn að ganga til liðs við þau, né nokkur annar flokkur“, segir Ragnheiður í viðtali á Hringbraut í kvöld kl.21:45. Hún segist ekki hafa leitt hugann að neinu öðru framboði og sé fyrst og fremst þingmaður Sjálfstæðisflokksins þar til í haust og ætli að vera í flokknum áfram.  Þekkt er að Ragnheiði fannst gengið framhjá sér við skipun í embætti innanríkisráðherra þegar Hanna Birna hætti og líka þegar Illugi Gunnarsson var skipaður menntamálaráðherra. Ragnheiður segist trúa því að hefði hún verið karlkyns hefði ekki verið gegnið framhjá henni í embættin, hún hafi bæði mikla menntun og reynslu í einmitt þessi störf. Hún neitar því þó að þessi mál hafi nokkur áhrif á að hún ætli að hætta á þingi fyrir flokkinn.

Hún segir ástæðuna fyrir því að hún hættir þá að henni finnist þrjú kjörtímabil nóg fyrir sig, hún hafi hugsað á sömu nótum þegar hún var bæjarstjóri í Mosfellsbæ og ákvað að snúa sér að þingstörfum.

Ragnheiður hefur verið þingmaður Suðvesturkjördæmis síðan 2007 fyrir og formaður þingflokksins síðan 2013. Þá var hún bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ 2002–2007 og bæjarstjóri.