Á það - má það

Fræg er yfirlýsing útrásarvíkings frá því fyrir hrun sem þótti stundum nokkuð hrokafullur. Hann svaraði "á það - má það" þegar hann var gagnrýndur fyrir að fylgja ekki reglum í umtöluðu tilviki.


Þetta kom í hug þegar upplýst var um viðbrögð Kristjáns Loftssonar formanns Granda við framboðum til stjórnar Granda frá nýjum hluthöfum sem keypt hafa 30% í félaginu frá því það fór á markað í fyrra.


Þeir áttu ekki von á öðru en framboðum svo stórra hluthafa yrði tekið fagnandi. Þess vegna athuguðu þeir ekki að biðja um margfeldiskosningu til að tryggja stöðu minnihlutahluthafa en Kristján og tengdir ráða rúmum 40% hlutafjár í Granda.


Kristjáni þótti engin ástæða til að koma til móts við þriðjung hluthafa og fékk alla 5 stjórnarmennina kjörna af sínum lista: "Á það - má það."


Hann hefur greinilega ekki ennþá skilið eðli þess að vera með félag skráð á kauphöllinni.