,,á réttri leið\" kl. 22 á hringbraut í kvöld

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins og  Páll Magnússon, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi eru gestir Rósu Guðbjartsdóttur í þættinum Á réttri leið í kvöld kl. 22. Þau ræddu saman um nýafstaðinn flokksráðsfund Sjálfstæðisflokksins, stefnu flokksins í efnahagsmálum, ferðamálum og fóru víða um í umræðum um nýsköpunarmál.

Þátturinn er fyrsti þátturinn í kosningasjónvarpi stjórnmálaflokkanna á Hringbraut, þar sem nokkrir af helstu flokkum í framboði ræða áherslumál sín. Þátturinn verður endursýndur á tveggja klukkustundafresti í sólahring og um næstu helgi.