Á pópúlískur flokkur séns?

Inga Sæland formaður Flokks fólksins er rogginn eftir gott gengi hennar flokks í skoðanakönnun MMR. Inga gefur stór fyrirheit enda eru áform Flokks fólksins afar djörf.

Egill Helgason skrifar á Silfur Egils og segir hann þetta um áform Flokks fólksins: \" Allt getur þetta fengið nokkurn hljómgunn - og maður heyrir spurt hvorn þarna sé kominn fyrsti pópúlistaflokkur Íslands sem eigi einhvern séns?\"

Framboð flokks fólksins getur gjörbreytt þeirri mynd sem blasir við í Reykjavík eftir könnun MMR. Viðreisn og Björt framtíð þurrkast út en samstarfsflokkur þeirra styrkir stöðu sína.

Björt framtíð fær 2,4% í könnun MMR og Viðreisn fær 4,7%.

Formaður Samfylkingarinnar Logi Már Einarsson segir um niðurstöður könnunar MMR að þessi úrslit komi í sjálfu sér ekki á óvart. Flokkur fólksins mælist stærri vegna þess að Björt framtíð og Viðreisn séu að súpa seiðið af því að báðir flokkar hafi gengið of langt á forsendum Sjálfstæðisflokksins.

Logi Már bætir því við að Björt framtíð og Viðreisn hafi gengið á bak orða sinna í kosningabaráttunni.  

Flokkur fólksins tekur að mati Ingu Sæland við þeim sem standa höllum fæti á Íslandi og tekur þannig við hlutverki Alþýðuflokksins og Alþýðubandalagsins í liðini öld.

Stefna Sjálfstæðisflokksins í félags- og velferðamálum aflaði flokknum umtalsverð fylgis á árum áður. Það er liðin tíð. Það verður ekki auðvelt fyrir \"gömlu\" flokkana að fyrirbyggja að Flokkur fólksins nái til sín töluverðu fylgi.

Nú mun ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar líkast til skerpa stefnu sína og markmið og allir flokkar verða líka að huga að framboðsmálum í sveitarstjórnakosningunum árið 2018.

Upp úr standa orð Egils Helgasonar um að mættur er til leiks pópúlistaflokkur sem fær mikinn hljómgrunn. 

Flokkur fólksins á líkast til séns.

 

Nánar www.eyjanpressan.is   www.mbl.is  www.stundin.is

[email protected]