„á næstu 50 árum verði um 90 prósent þeirra dýrategunda sem við þekkjum horfnar“

Um 90 prósent dýrategunda við Ísland munu hverfa innan fimmtíu ára vegna loftlagsbreytinga og ágangs manna. Einhverjar tegundanna munu færa sig norðar eða sunnar en aðrar munu deyja út. Þetta sagði Þorleifur Eiríksson dýrafræðingur og framkvæmdastjóri RORUM í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi.

Samkvæmt nýrri skýrslu á vegum Sameinuðu þjóðanna hrakar vistkerfum jarðar mun hraðar en áður var talið. Í niðurstöðum skýrslunnar kom meðal annars fram að um milljón tegundir af þeim átta milljónum sem þekktar eru á jörðinni séu í útrýmingarhættu og að hraði útrýmingar sé langt umfram meðaltal sögulegs tíma. Enn sé þó hægt að grípa til aðgerða í umhverfismálum og breyta því sem í stefnir, að minnsta kosti að einhverju leyti.

Þorleifur, sem hefur rannsakað áhrif loftslagsbreytinga á dýrategundir, segir eina milljón tegunda vera varlega áætlað. „Milljón dýrategundir. Þú getur alveg eins sagt tíu milljónir. Við þekkjum ekki allar dýrategundir, það er ekki búið að lýsa nærri því öllum tegundum sem eru hér í kringum landið. Þetta eru dýrategundir sem menn hafa nafngreint að séu í hættu. Það þýðir að þetta sé mjög varlega áætlað. Það er bara augljóst út frá þessari skýrslu.“

Hann segir von á gríðarlegum breytingum á næstu áratugum. „Ég held að það geti enginn ímyndað sér það. Og vilji kannski enginn ímynda sér það.“

Þorleifur segir að loftslagsbreytingar muni hafa mikil áhrif á dýralíf á Íslandi. „Mér sýnist þetta því miður vera að fara illa og ég geri ráð fyrir því að á næstu 50 árum verði um 90 prósent þeirra dýrategunda sem við þekkjum horfnar. Sumar munu lifa aðeins norðar, eða sunnar eftir atvikum en mjög margar munu bara deyja út.“

Hann segir að breytingar á hitastigi sjávar muni hafa mikil og keðjuverkandi áhrif. „Stuttnefja er að hverfa og mun fara norðar. Langvía sennilega mjög fljótlega líka. Lundinn hefur eins og við vitum algjörlega hrunið af því að sandsílið er horfið. Menn vilja tala um að það sé einn hluti af þessum breytingum.“

Þorleifur segir einnig að skelfiskstofninn við landið gæti hrunið vegna súrnunar sjávar. Talið er að neikvæðra áhrifa þess muni einna fyrst gæta við Ísland. „Það er ekki bara að þessar tegundir hverfa. Þær eru náttúrulega hluti af mjög flóknum fæðuvef. Ýsan til dæmis, hún lifir mest á skeldýrum, það verður væntanlega mikið hrun á þeim stofni og síðan bara keðjuverkun.“