Bíladelluþátturinn Kíkt í skúrinn hefur göngu sína á sjónvarpsstöðinni Hringbraut klukkan 20.30 í kvöld og verður haldið suður í Bítlabæinn í Keflavík í fyrsta þættinum og skoðað í skúrinn hjá varaformanni Mustang-félagsins á Íslandi.
Helsti viðmælandi Jóhannesar Bachmann umsjármanns þáttanna að þessu sinni verður Þorgrímur St. Árnason sem fyrir áratug flutti til landsins Mustang-kagga af gerðinni Shelby GT-500, árgerð 1969, sem er áritaður af Shelby sjálfum, hönnuði bílsins, en Þorgrímur hefur hitt goðsögnina sjálfa nokkrum sinnum og fengið ráð um viðhald bílsins sem er þvílík forláta rennireið að eftir henni er tekið með augnbotnunum hvar sem hún fer. Þorgrímur hefur farið tvisvar utan með bílinn á þeim tíu árum sem hann hefur átt hann til að sýna gripinn og sjá samanburðinn við aðra kagga af sömu gerð og uppruna.
Í þættinum í kvöld verður líka farið í hópreið mótorhjólamanna í tilefni af 1. maí í ár, en talið er líklegt að þar hafi verið slegið heimsmet í hópreið, altént miðað við blessaða höfðatöluna en varla færri en 1200 hjól tóku þátt í reiðinni í ár.
Þátturinn Kíkt í skúrinn er fyrr segir frumsýndur klukkan 20.30 í kvöld og verður framvegis á þeim tíma í upphafi vinnuvikunnar.