Fiskikóngurinn Kristján Berg heldur áfram með þætti sína Lífið er fiskur á Hringbraut í kvöld, en´þá liggur leið hans í þann fallega og vinalega bæ sem Stykkishólmur heitir.
Í þættinum kynnist Kristján matarmennigunni á Snæfellsnesi, þar sem er a finna eina helstu matarkistu landsmanna úti á breiðasta firði landsins, en nokkur helstu veitingahús bæjarins eru heimsótt með þeim tilþrifum sem fiskikónginum er einum lagið.
Lífið er fiskur byrjar klukkan 20:00 í kvöld.