Fótbolti verður til umfjöllunar í ,,Fólki með Sirrý” á Hringbraut í kvöld. Mikið hefur verið rætt um að þjóðin þurfi að styðja stelpurnar í boltanum eins og strákana okkar. Og nú fáum við að kynnast atvinnukonum í knattspyrnu, landsliðskonunum og systrunum úr Eyjum Margréti Láru Viðarsdóttur og Elísu Viðarsdóttur. Móðir þeirra Guðmunda Á. Bjarnadóttir er líka gestur hjá Sirrý.
Þær ræða um sorgir og sigra í boltanum. Mikilvægi fyrirmynda, hvernig maður elur upp afreksíþróttafólk. Guðmunda var sjálf íþróttamanneskja en hætti í boltaíþróttum þegar hún varð ófrísk. Í dag eru aðrir tímar og nú á Margrét Lára son en er atvinnumanneskja í knattspyrnu og landsliðskona. Hún segist sýna yngri konum að þetta sé vel hægt.
Margrét Lára er eina konan á lista yfir markahæstu knattspyrnuleikmenn heims. Hún hefur skorað fleiri mörk en Zlatan Ibrahimovich. Í þættinum ræða mæðgurnar áhuga eða áhugaleysi þjóðarinnar á kvennaknattspyrnu. Kvennalandsliðið er á leið á EM í 8 liða úrslit í Hollandi næsta sumar og eru þær mæðgur sannfærðar um að landsmenn muni flykkjast út að styðja stelpurnar okkar.
Fólk með Sirrý er frumsýndur á Hringbraut kl. 20:30 á miðvikudagskvöldum.