Vestur-Íslendingurinn Bill Thorsteinsson er að undirbúa Íslandsferð eftir að hafa komist í kynni við land forfeðra sinna í gegnum bílaþáttinn Kíkt í skúrinn sem sýndur er á mánudagskvöldum á sjónvarpsstöðinni Hringbraut.
Þættirnir sinna bíladellu á háu stigi og hafa á undanförnum vikum lokið upp hverjum bílskúrnum af öðrum sem geyma margar fegurstu rennireiðar landsmanna og margar svo fágætar að aðeins eru til nokkur eintök af þeim í heiminum.
Athygli hefur vakið hversu mikillar hylli þættirnir njóta á erlendri grundu, en fjöldi manns fylgist með þeim á netinu, en þar eru þeir ávallt aðgengilegir í heild sinni og í klippum á hringbraut.is. Meðal áhangenda þáttarins er Vestur-Íslendingurinn Bill Thorsteinsson sem býr í San José, þriðju fjölmennustu borg Kaliforníu, en eftir að hann uppgötvaði þættina hefur áhugi hans á landi forfeðra sinna aukist svo mjög að nú hefur hann ákveðið að heimsækja Ísland næsta sumar eftir að hafa skoðað fjölda mynda af landinu og lesið sér til um það, allt vegna þáttanna sem kveiktu þennan mikla og óvænta Íslandsáhuga. Fram að því að hann sá þættina í fyrsta skipti hafði hann aldrei leitt hugann að því að ferðast svo langt í norður.
Þættirnir Kíkt í skúrinn njóta ekki síður vinsælda austan Atlantsála, en á Facebook-síðu þáttanna eru skráðir 456 Bretar sem fylgjast vikulega með þáttunum og bera saman bækur sínar um bílana sem þar getur að líta.
Von er á nýrri þáttaröð af Kíkt í skúrinn frá og með haustdagskrá Hringbrautar sem hefst í byrjun september.