Alls hafa nú 133 heilbrigðisstarfsmenn sagt upp á Landspítalanum eftir að stjórnvöld settu lög á verkfallsaðgerðir þeirra síðastliðinn laugardag, þar af eru 103 hjúkrunarfræðingar.
Uppsagnarhrinan hófst þegar á mánudag, fyrsta virka vinnudaginn eftir lagasetninguna, en í tilviki hjúkrunarfræðinga hefur vikan verið notuð til að meta mögulega málsókn félags þeirra á hendur ríkinu vegna lagasetningarinnar og hefur lögmanni þess nú verið falið að höfða málið.
Fullvíst er talið að það komi í hlut gerðardóms, sem skipaður verður af Hæstarétti, að ákveða kjör heilbrigðisstéttanna sem voru í verkfalli, en jafnljóst þykir að niðurstaða dómsins verði fjarri launakröfum hópanna því talið er að hann muni taka tillit til almennrar launaþróunar og nýgerðra samninga á almennum vinnumarkaði.
Hjúkrunarfræðingar meta það svo að þeir hafi dregist verulega aftur úr viðmiðunarstéttum sínum, eða sem nemur allt að 25% á síðustu árum og þá sýna gögn þeirra að gríðarlegur munur er á þeirra launum og lækna; munar þar 138% á dagvinnulaunum skurðlækna og hjúkrunarfræðinga og 94% ef hjúkrunarlaunin eru borin saman við laun annarra lækna. Í þessu samhengi minna þeir á að 97,5% stöðugilda hjúkrunarfræðinga séu í höndum kvenna, en 2,5% í höndum karla, á meðan karlar séu mun fjölmennari í læknastétt.
Innan úr herbúðum hjúkrunarfræðinga heyrast raddir í þá veru að uppsögnum muni fjölga að mun þegar niðurstaða gerðardóms liggi fyrir, en hann á að taka til starfa 1. júlí hafi ekki samist fyrir þann tíma.
,