Jafnrétti kvenna og karla er rammað inní sáttmála sem eitt grunngilda nútíma samfélaga. En betur má ef duga skal. Umburðaleysi í garð kvenna og kvenfyrirlitning birtast víða og í marvíslegu formi. Réttindi kvenna eru mannréttindi. Eina leiðin til að tryggja að konur geti nýtt hæfileika sína til fullnustu er að vernda mannréttindi þeirra og tryggja að þær geti nýtt hæfileika sína.
Árið 1900 fagnaði Hið íslenska kvenfélag nýrri öld með útgáfu bókar John Stuart Mill um kvenfrelsi sem heitir Kúgun kvenna í þýðingu Sigurðar Jónassonar stúdents. Þannig kynntust Íslendingar eldlegum áhuga John Stuart á jafnrétti kvenna og karla. Bókina er rétt að glugga í á þessum degi.
Ísland er í farabroddi í mannréttindamálum og staða jafnréttismála hér á landi er er sterk. Íslendingar þurfa engu að síður stöðugt að horfa til þess hvað þeir geta bætt. Hinn 8.mars geta Íslendingar verið hreyknir af miklum árangri í jafnréttissmálum hér á landi. Sá árangur er öllum hvatning til að halda áfram að vera í farabroddi í mannréttindamálum kvenna.