Gunni er hraustur unglingspiltur sem stundar handbolta af kappi. Í myndskeiðinu hér fyrir neðan er saga hans sögð. Þar fáum við að skyggnast inn í líf hans. Móðir hans vekur hann á hverjum morgni í skólann, hann fær yfirleitt egg, gengur síðan vel í skóla og í íþróttum. Þá sjáum við þegar honum er boðin vímuefni, e-tafla sem hann hafnar.
Þá er Gunna boðið e-töflur á nýjan leik í samkvæmi. Í það skiptið er hann undir áhrifum áfengis og lætur tilleiðast. Daginn eftir reynir móðir hans að vekja hann.
„Gunni,“ kallar móðirin. „Gunni vaknaðu.“ Hún gengur inn í herbergið og leggur hönd á bak hans og hljóðar upp yfir sig þegar hún uppgötvar að hann sé látinn og brestur í grát.
Hið átakanlega myndskeið er hluti af kynningar- og fjáröflunarátakinu Á allra vörum var hleypt af stokkunum í gær. Átakið fer nú fram í níunda sinn og í hvert sinn hefur Á allra vörum valið ein samtök til að styrkja. Í ár varð Eitt líf fyrir valinu, sem vinnur að því að sporna við og draga úr misnotkun lyfseðilsskyldra lyfja og annara fíkniefna, sérstaklega á meðal ungmenna á Íslandi.
Eitt líf er þjóðarátak sem var stofnað á síðasta ári í kjölfar þess að Einar Darri Óskarsson lést aðeins 18 ára að aldri eftir misnotkun á lyfseðilsskyldum lyfjum. Hann fannst látinn í rúmi sínu og kom það fjölskyldu hans í opna skjöldu þegar hann lést af lyfjaeitrun. Hafði Einar Darri þeim að óvörum verið byrjaður að nota lyfseðilsskyld lyf nokkrum vikum fyrir sviplegt fráfall sitt.
Sjá má auglýsinguna hér:
Líkt og fyrri ár vekur Á allra vörum athygli á málefninu með því að selja Á allra vörum varasett, gloss og varalit saman í pakka til að fjármagna starfsemi Eins lífs. Einnig er hægt að styrkja átakið með því að hringja í 900 númer. Hægt er að styrkja átakið um 2, 4, 6, 8 og 10 þúsund krónur. Númerin byrja öll á 90715 og enda á upphæðinni, 02, 04, 06, 08 eða 10.