Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) vilja að byrjað verði að stýra flaumi ferðamanna til Íslands. Grímur Sæmundsen formaður Samtaka ferðaþjónustu (SAF) kveðst bjartsýnn á að sumarið 2017 gangi vel. Grímur telur að ferðaþjónustan muni ráða við fjöldann sem væntanlegur er. Grímur nefndi í sinni ræðu á aðalfundi SAF að þetta gengur ekki með óheftum hætti áfram svona. Hann segir að horfa verði til þess að stýra flæði ferðamanna til Íslands og um landið og að stærstu ferðamannaperlum með miklu markvissari hætti en Íslendingar hafi gert. Grímur sagði: \"Ég held að það sé lykilatriðið lykilhugtak í þessu samhengi er aðgangsstýring.\"
Nánar www.mbl.is og www.vb.is