Á að láta reyna lengur á sykurskattinn

Einungis tíu prósent landamanna fylgja matarráðleggingum Landslæknis. Bryndís Eva Birgisdóttir, doktor í næringarfræði við Háskóla Íslands segir að það þurfi að bera meiri virðingu fyrir almenningi en verslanir setja fram vörur sínar iðulega með óhollari matvörur og auglýsingar á mest áberandi stað.  Unnar matvörur og sykur er mjög stór hlut af þeirri fæðu sem við látum ofaní okkur. Brynsíd Eva gagnrýnir að sykurskatturinn sem stjórnvöld settu á í hitteðfyrra hafi verið tekinn af. Hún bendi á að skatturinn hafi verið á vörum í einungis eitt ár og það sé allt of stuttur reynslutími. Viðtal Lindu Blöndal við Bryndísi verður sýnt á Hringbraut kl.20 í kvöld.