Til heiftarlegra orðaskipta kom á milli Gunnars Smára Egilssonar stofnanda Sósíalistaflokksins og Stefáns Einars Stefánssonar blaðamanns á Morgunblaðinu í umræðu um kjaramál í Silfrinu á RÚV í morgun. Stefán Einar skaut á Gunnar Smára vegna viðskilnaðar hans á Fréttatímanum, en fjölmiðillinn hætti rekstri skyndilega árið 2017 og ekki fengu allir starfsmenn greidd laun sem þeir áttu inni hjá fjölmiðlinum, er þeir tvímenningar tókust á um árangur af starfi Stefáns Einars í embætti formanns VR. Stefán Einar var nokkuð umdeildur í starfi á þeim tíma sem hann stýrði VR og sem dæmi má nefna að þá höfðaði hann m.a. meiðyrðamál gegn DV vegna umfjöllunar um ráðningu Söru Lindar, unnustu hans til VR á þeim tíma sem Stefán Einar gengdi formennsku, þótt hún hafi ekki verið metin hæfust. Þess má geta að DV var sýknað af þeirri umfjöllun.
En í þættinum í dag sauð sem sagt upp úr sem endaði á því að Stefán Einar klappaði á handlegg Gunnars Smára og sagði: „Ég borgaði þó laun, Gunnar.“
Áður hafði Stefán Einar bent á að kjarasamningar sem hann gerði fyrir hönd VR árið 2011 hefðu leitt til þess í áföngum að lágmarkslaun væru í dag komin upp í 300.000 kr. og að hinir lægst launuðu hefðu fengið kjarabætur upp á 65% á undanförnum árum.
Nánar á
Stefán Einar sagði að það eina sem gæti leitt til endurtekins fjármálahruns á Íslandi væru óbilgjarnar kröfur nýrrar forystu verkalýðshreyfingarnar og það væri ólíðandi að menn fengjust ekki til aðleggja fram útreikninga um hvað þessar kröfur myndu kosta þjóðarbúið og fyrirtæki.