Margrét Pála Ólafsdóttir sem margir kalla ,,ofurfóstru“ Íslands ræðir um uppeldi barna og unglinga í ,,Fólki með Sirrý“ í kvöld - og er óhætt að segja margur verði fróðari á eftir þann þáttinn.
Margrét Pála segir að uppeldismál séu stærsta pólitíska mál samtímans. Börn líði af hörgulskorti sambærilegt við plágur fyrri ára. Í dag líða börn vegna skorts á tíma og næði með foreldrum og öðrum aðstandendum. En er það foreldrum að kenna ef börn/unglingar eru óþekk eða beita ofbeldi, spyr Sirrý í þættinum. Margrét Pála hefur svör við því og liggur ekki á skoðunum sínum frekar en fyrri daginn. Hún gefur líka ýmis góð ráð í þættinum eins og hvernig á að bregðast við ef lítið barn bítur. Á að bíta það til baka eins og stundum er ráðlagt? ,,Ég á erfitt með það“ segir Magga Pála.
Fólk með Sirrý hefst klukkan 20:30 í kvöld. Hér má sjá sýnishorn úr þætti kvöldsins.