Það hefur verið rólegt hjá lögreglunni á Suðurlandi síðasta sólarhring. Mikill fjöldi ferðamanna, innlendra sem erlendra, eru í umdæminu og tjaldsvæði víða þétt skipuð. Skemmtanahald fór vel fram og voru fá útköll og verkefni sökum vímuástands eða óspekta síðastliðna nótt. Einn gisti fangageymslu lögreglu á Selfossi. Þá segir í tilkynningu frá lögreglu:
„Umferðarmál voru nokkuð mörg og ber þar mest á hraðakstri en 20 ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók var mældur á 176 km/klst hraða. Var ökumaður sviptur ökuréttindum á staðnum og þurfti að láta af hendi nokkurra daga gamalt ökuskírteini sitt.“
Þá segir einnig í tilkynningu lögreglu:
„Lögregla mun halda uppi öflugu eftirliti næstu daga. Ökumenn mega búast við að lögregla setji upp eftirlitsstöðvar á völdum staðsetningum þar sem kannað verður með ástand ökutækja sem og ástand og réttindi ökumanna. Lögregla verður einnig með óeinkennisklædda lögreglumenn á ferð um umdæmið.
Lögregla áréttar að akstur, áfengi og önnur vímuefni eiga ekki samleið og beinir þeim tilmælum til ökumanna að setjast ekki undir stýri nema allsgáðir og úthvíldir.“