99% kúnnanna eru útlendingar

"Erlendu ferðamennirnir sem við þjónum vilja fyrst og fremst að komast í snertingu við ósnortna náttúru. Þá dreymir um að upplifa eitthvað alveg einstakt með komu sinni til landsins," segir Leifur Örn Svavarsson leiðsögumaður hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum, en fyrirtækið hefur vaxið hratt á síðustu árum og veltir nú hálfum öðrum milljarði og hefur starfsfólki fjölgað úr 5 í 30 á þeim tveimur áratugum sem það hefur verið við lýði. Nánast allir viðskiptavinirnir eru útlendingar sem þrá að komast í óspillt firnindin. Leifur Örn, sem var gestur í nýjasta Lífsstíl á sjónvarpsstöðinni Hringbraut segir það megin verkefni íslenskrar umhverfisverndar að viðhalda þessum hreinleika íslenskrar náttúru sem ferðaþjónusta hér á landi stendur og fellur með. Tæpur aldarfjórðungur sé liðinn frá því fyrstu erlendu fjallaferðamennirnir komu í hópum til landsins og þeir sem nú komi séu að skila sér vegna þess orðspors sem fer af ósnortinni náttúru á Íslandi. Verkefni næstu ára sé viðhalda því orðspori.