99% framsóknarfólks ánægð með forsetann

MMR hefur kannað ánægju landsmanna með störf forseta Íslands.

Könnunin var framkvæmd dagana 4. apríl til 5. apríl 2016 og var heildarfjöldi svarenda 987 einstaklingar, 18 ára og eldri.

Helstu niðurstöður eru að 60,7% svarenda sögðust vera ánægðir með störf Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands.

Ánægja með störf forseta hefur ekki mælst meiri síðan 2013.

99% stuðningsmanna Framsóknar sögðust vera ánægðir með störf forseta.

Fólk sem lokið hefur háskólanámi er ólíklegra til að vera ánægt með störf forseta.

Lesa má meira um könnun MMR hér.