900 krónur fyrir sundferð fullorðinna

Frá og með 1. nóv­em­ber næstkomandi mun stök sundferð frir fullorðna kosta 900 krón­ur í Reykjavík. Borg­ar­ráð samþykkti hækk­un­ina en það var Dag­ur B. Eggerts­son borgarstjóri sem lagði fram til­lög­una. Borg­ar­ráðsfull­trú­ar Sjálf­stæðis­flokks­ins sátu hjá við af­greiðslu máls­ins.

Í til­lögu borg­ar­stjóra kem­ur fram að hækk­un­in sé liður í fyrstu skref­um í aðgerðaáætl­un borg­ar­ráðs. Verð fjöl­miðakorta og af­slætt­ir hald­ist óbreytt.

Í dag kost­ar 650 krón­ur fyr­ir full­orðna í sund­laug­ar Reykja­vík­ur­borg­ar.

Morgunblaðið sagði fyrst frá.