9% telja sigmund heiðarlegan

Ef marka má nýja könnun MMR um persónueiginleika nokkurra stjórnmálaleiðtoga geta Birgitta Jónsdóttir og Katrín jakobsdóttir vel við unað, en þær eru taldar standa við sannfæringu sína, vera heiðarlegar og gæddar persónutöfrum. Sama verður ekki sagt um Sigmund Davíð Gunnlaugsson, en 9% svarenda segja hann heiðarlegan.


Þriðjungur svarenda í könnun MMR segja Ólaf Ragnar Grímsson vera fæddan foringja, annar eins fjöldi segir hann vera sterkan leiðtoga og hartnær 40% sögðu hann vera ákveðinn.


Sem fyrr segir fær Sigmundur Davíð lága einkunn, 5% töldu hann gæddan persónutöfrum - og það á raunar einnig við um formann hins stjórnarflokksins, því 5% sögðu einnig að Bjarni Benediktsson hefði til að berapersónutöfra og 8% svarenda töldu hann standa vörð um almannahagsmuni.