9 milljarða tap ccp á síðasta ári

Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP tapaði sem nemur 8,7 milljörðum króna á síðasta ári. Skuldir félagsins námu á síðasta ári 6,5 milljörðum króna en eigirnar 4,4 milljörðum, samanborið við tæplega 14 milljarða árið á undan.


Samkvæmt þessum tölum, sem DV birtir í dag, er eigið fé CCP því neikvætt um tvo milljarða íslenskra króna í árslok. Blaðið vísar í ársreikning félagsins sem skilað var til Ríkisskattstjóra síðastliðinn þriðjudag, en samkvæmt honum lækkuðu tekjur félagsins um rúman milljarð króna á milli ára en gjaldfærður rannsóknar- og þróunarkostnaður jókst um jafnvirði fjögurra milljarða króna.


CCP hefur verið í umræðunni síðustu daga vegna áforma félagsins um að flytja aðalstjórn eþss úr landi vegna hafta og einangrunar landsins, svo og skorts á alþjóðlegu samstarfi.