9 ára stúlka bitin illa í maga og klóruð í andlit: lögregla óskar eftir aðstoð

„Rétt í þessu vorum við að taka á móti 9 ára stúlku sem hafði verið bitin illa af hundi í magann og klóruð í andlitið. Þetta gerðist fyrir stuttu síðan við Heiðarskóla í Reykjanesbæ. Stúlkan er mjög skelkuð og erum við að leita að eiganda þessa hunds. En eigandinn er að öllum líkindum búsett í Heiðarskólahverfinu og var hún á gangi þarna með barnavagn og var lítið barn með henni.“

\"Bitið

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum en stutt er síðan árás hundsins átti sér stað. Þar segir enn fremur:

„Að sögn stúlkunnar þá var hundurinn ekki í bandi og er hún nálgaðist hundinn þá beit hann hana, hundinum er líst sem svörtum og hvítum. Við hvetjum eiganda hundsins til að gefa sig fram við okkur hér á Facebook eða með símtali við 1-1-2. „

\"Hér

Lögreglan óskar eftir aðstoð lesenda en í lok tilkynningarinnar segir:

„Einnig þætti okkur vænt um að heyra í einhverjum vitnum af þessu atviki.“