Síðustu 5 daga hefur hringbraut.is verið með skoðanakönnun í gangi þar sem spurt hefur verið um afstöðu fólks til þess hvort Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra eigi að segja af sér eða ekki vegna Tortólamálsins.
Niðurstaðan er afgerandi: 86% telja að hann eigi að segja af sér, 13% eru ekki þeirrar skoðunar en 1% veit ekki hvað er best að gera í máli hans.