Ef marka má óformlega skoðanakönnun sem verið hefur á forsíðunni á hringbraut.is síðustu daga virðist sem almenningur í landinu telji forsætisráðherra þjóðarinnar höndla starf sitt illa. Enda þótt taka verði niðurstöðunni með fyrirvara er hún mjög afgerandi; 85% svarenda telja að Sigmundur Davíð hafi staðið sig illa á fyrri helmingi kjörtímabilsins, 11% telja að hann hafi staðið sig vel, sem er á pari við fylgi Framsóknarfdlokksins í nýrri fylgiskönnun MMR sem kynnt var í dag - og 3% segja að Sigmundur Davíð hafi staðið sig þokkalega.
Þessa óformlegu könnun er hægt að bera saman við síðustu könnun Capacent um ánægju með störf ráðherranna á síðasta kjörtímabili sem gerð var í janúar 2013, nokkrum mánuðum áður en ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur lét af völdum. Þá kváðust 26% aðspurðra vera ánægð með störf forsætisráðherra. Á þeim tíma var ánægjan mest með störf Katrínar Jakobsdóttur, þáverandi menntamálaráðherra, eða 31%.