Undanfarna viku rúma hefur verið sérlega kalt ofan við 15 km hæð yfir landinu. Trausti Jónsson veðurfræðingur heldur úti fróðleikssíðu sinni, Hungurdiskum, og í færslu í gærkvöld bendir Trausti á að Janúarkuldamet hafi verið slegin
„Frostið mældist -85,2 stig í 30 hPa í dag (fimmtudag 14. janúar), það mesta í janúar. Aðeins tvisvar hefur mælst meira frost í fletinum í febrúar,“ skrifar Trausti en færslu hans má lesa í heild hér.
Skýringar þessa eru að „ein risavaxin háloftalægð“ ræður ríkjum eftir því sem fram kemur hjá Trausta. „Hún er á sínum venjulegu slóðum - en er að sögn nokkru kaldari og öflugri en venjulega.“
Einnig kemur fram á Hungurdiskum að undanfarna daga hafi það stöku sinnum borið við að greining og spár hafi sýnt svæði þar sem frostið er meira en -90 stig og sprengi þar með litakvarðann sem er notaður með myndinni að ofan sem fengin er að láni frá Trausta.
En hvað veldur?
„Líklegt er að aukin gróðurhúsaáhrif valdi kólnun í heiðhvolfinu, ósoneyðandi efni valda kólnun þar - það er vafalaust, það gæti alls konar agnamengun gert líka - sumt af henni er ótengt losun gróðurhúsalofttegunda - en sumt ekki. Mannrænar breytingar geta valdið röskunum á samskiptum veðra- og heiðhvolfs - aukinn rakaleki upp í gegnum veðrahvörfin er t.d. talinn varasamur,“ skrifar veðurfræðingurinn góðkunni og er ástæða til að sperra eyrun við.