Dyggir áhorfendur sjónvarpsstöðvarinnar Hringbrautar hafa örugglega tekið eftir því í gærkvöld að nýr dagskrárliður skreytir dagskrána á mánudagskvöldum á milli klukkan 21.00 og 22.00, á eftir þáttunum Lífsstíl og Hringtorgi. Þar er kominn dagskrárliður sem verður framvegis helgaður heimildarmyndagerð Páls Steingrímssonar, eins virtasta myndasmiðs á sínu sviði. Þáttur um kirkjutónlist var á skjánum í gærkvöld, en eins og unnendur mynda Páls vita er safn hans veglegt að burðum og þar er ekki síst að hafa rómaðar náttúrulífsmyndir sem munu verða á dagskrá Hringbrautar fram á sumar.
Páll er Vestmannaeyingur að uppruna. Þar kenndi hann fram á miðjan aldur að kvikmyndalistin tók hug hann allan. Og hann er enn að, nýlega kominn úr heimildarmyndagerð í Kína, hálfníræður að aldri og enn sem fyrr næmur á það myndræna í lífríkinu öllu.