84 lögreglumenn biðja um vinnu

84 lögreglumenn leita sér nú að annarri vinnu eftir að hafa að eigin sögn starfað á hugsjóninni einni saman um langt árabil og notað til þess helgar og nætur svo endar nái saman.

\"Nú er mál að linni,\" segja lögreglumennirnir í heilsíðuaglýsingu í Morgunblaðinu í dag, en þeir eru ekki nafngreindir heldur einungis tölusettir með lýsingum á menntun þeirra og starfsreynslu aftan við hverja tölu: \"Við erum að leita að nýjum starfsvettvangi,\" segja þeir í auglýsingunni og bæta við: \"Um okkur öll má segja að við séum réttsýn, úrræðagóð, þrautseig og eljusöm.\"

Í auglýsingu er tilgreint sérstaklega að lögreglumennirnir sem hér um ræðir komi úr öllum deildum lögreglunnar og fjölbreytta reynslu sé að finna í þeirra hópi: \"Kæru atvinnurekendur. Tækifærið er ykkar,\" segir í þessari óvenjulegu atvinnuauglýsingu sem merkt er [email protected].

Lögreglumenn á landinu hafa haft lausa samninga við ríkið svo misserum skiptir. Þeir hafa ekki verkfallsrétt, en hafa sýnt það í verki síðustu daga að þeir eru langþreyttir á litlum samningsvilja ríkisins.