Í kjölfar frétta af gagnaleka sem tengdi forsætisráðherra og fleiri íslenska ráðamenn við aflandsfélög, mældi Gallup viðhorf íslensks almennings til þess hvort Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ætti að sitja áfram sem forsætisráðherra eða segja af sér.
Rösklega 81% þeirra sem tóku afstöðu töldu að hann ætti að segja af sér en tæplega 19% að hann ætti að sitja áfram, segir í niðurstöðu sem kynnt er nánar hér. Konur töldu frekar en karlar að hann ætti að segja af sér, og íbúar höfuðborgarsvæðisins frekar en íbúar landsbyggðarinnar. Ríflega 86% þeirra sem kysu Framsóknarflokkinn ef kosið yrði til Alþingis í dag töldu að Sigmundur ætti að sitja áfram og um 44% þeirra sem kysu Sjálfstæðisflokkinn, á meðan á bilinu 94-100% þeirra sem kysu aðra flokka töldu að hann ætti að segja af sér. Að sama skapi töldu 99% þeirra sem styðja ekki ríkisstjórnina að Sigmundur ætti að segja af sér á meðan 64% þeirra sem styðja ríkisstjórnina töldu að hann ætti að sitja áfram, segir í niðurstöðum Gallup.