„Stærsta hagvaxtarsvæði á landinu er í Reykjavík og framundan er mikil fjárfesting, bæði erlend og innlend,“ sagði Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri á opnum morgunfundi um fjárfestingu í Reykjavík sem haldin var í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Hátt í 300 manns mættu á fundinn. Þar var farið vítt og breitt yfir svið framkvæmda og uppbyggingar í borginni.
Dagur hóf mál sitt á því að fara yfir ferðaþjónustu og hóteluppbyggingu í Reykjavík, en á þessu ári er áætlað að um 800 hótelherbergi verði tekin í notkun í Reykjavík. Þá tilkynnti hann um nýtt fimm stjörnu hótel sem samningar hafa tekist um á Hörpureitnum en framkvæmdir við það hefjast í haust. Borgarstjóri fór einnig yfir uppbyggingaráform Landspítalans og þekkingarþorp í Vatnsmýrinni, samstarf háskólanna og Reykjavíkurborgar um víðtæka uppbyggingu háskólanna, þekkingarfyrirtækja og samtaka stúdenta.
Þá lýsti Dagur einnig áformum um uppbyggingu á vegum borgarinnar, einkaaðila og fleiri á nýjum uppbyggingarreitum í Vesturbugt, Kirkjusandi og við Hlemm, ræddi um fyrirhugaða samgöngumiðstöð á landi Reykjavíkurborgar við Umferðarmiðstöðina og fór loks yfir fyrirhugaða uppbyggingu á vegum Faxaflóahafna, bæði í Sundahöfn og á Grundartanga. Að lokum sagði hann frá kaupum Reykjavíkurborgar á landi í Varmadal sem þykir henta vel fyrir uppbyggingu gagnavers þar sem tengivirki Landsnets er þar rétt hjá.