800 börn á bugl

„Það er dýrt að spara í þess­um mála­flokki,“ seg­ir yfirlæknir göngudeildar barna- og uglingadeildar BUGL.

Þetta kemur fram í umfjöllun um geðheilbrigðismál í Morg­un­blaðinu í dag en þar er greint frá hrikalegum veruleika.

Samkvæmt blaðinu er talið að 15-20% barna eigi við geðræn vanda­mál að stríða á hverj­um tíma og 5% þurfi sér­fræðiþjón­ustu. Á BUGL er 771 barn undir 18 ára aldri til meðferðar.

Einnig kemur fram að um 120 börn eru á biðlista eft­ir þjón­ustu BUGL og seg­ir Guðrún að það geti haft ýms­ar af­leiðing­ar að börn þurfi að bíða eft­ir geðheil­brigðisþjón­ustu.