Flestir gesta hótelanna tveggja sem ráðist var á í ferðamannabænum Soiusse í Túnis í gær hafa yfirgefið hótelin. 38 týndu lífi í skotárás tveggja hryðjuverkamanna sem eltu uppi gesti við hótelið og stráfelldu þá.
Samtökin um Íslamskt ríki lýstu yfir ábyrgð á ódæðinu, en talið er að á meðal hinna látnu séu átta Bretar, einn Belgi og einn Þjóðverji.
Á sjötta hundrað gesta voru á hótelunum, flestir frá Bretlandi og ríkjum á meginlandi Evrópu.
Talið er að einungis eitthundrað gestir séu nú eftir á hótelinu. Götur sem umlykja hótelin eru tómar, þar sjást einungis blaðamenn og ferðamenn sem eru á leið af hótelinu í rútur.
Fullljóst þykir að evrópskar ferðaaskrifstofur slái af ferðir til Túnis á næstu vikum, en ferðaþjónusta er megintekjulind Túnisbúa. Vitað er til þess að danskar ferðaskrifstofur hafa aflýst öllum ferðum til landsons vegna árásanna.
Yfirvöld í Túnis ætla að loka 80 moskum á næstu vikum. Talið er að þar sé hvatt sé til ofbeldis. Habib Essid, forsætisráðherra landsins, tilkynnti þetta á blaðamannafundi í gærkvöld.