78% þjóðarinnar vilja að ekki verði hróflað við neyðarbraut Reykjavíkurflugvallar að því er fram kemur í nýrri skoðanakönnun MMR fyrir samtökin Hjartað í Vatnsmýrinni. Niðurstaðan er í takt við fyrri skoðanakannanir um Reykjavíkurflugvöll sem sýna að langflestir landsmenn vilja standa vörð um, jafnt íbúar úti á landi og á borgarsvæðinu. 68% Reykvíkinga vilja halda í neyðarbrautina.
Neyðarbrautin hefur verið mjög í umræðu að undanf0rnu vegna framkvæmda sem hafnar eru á svæði Valsmanna að Hlíðarenda en þær eru taldar geta haft áhrif á notkun brautarinnar. Gagnrýnt hefur verið að byrjað hafi verið á þeim framkvæmdum áður en niðurstaða Rögnunefndarinnar svokölluðu liggur fyrir, en hún á að skoða hvaða raunhæfu möguleikar eru á staðsetningu flugvallar í eða við höfuborgina. Þar kemur Vatnsmúrin fyllilega til greina ásamt öðrum kostum sem nefndir hafa verið; í Hvassahrauni, á Álftanesi, á Hólmsheiði og Lönguskerjum.