761 íbúi á Íslandi var án heimilis árið 2011 að því er nýjasta manntal Hagstofu Íslands sýnir, en starfsmenn hennar hafa verið að grandskoða tölurnar og flokka á undanförnum mánuðum.
Af þessu heimiliuslausa fólki voru 11 á útigangi, en 650 í húnsæðishraki eins og það er kallað af stofnuninni. Langflestir heimilislausra voru staðsettir á höfuðborgarsvæðinu. Karlar voru í meirihluta meðal heimilislauss fólks.
Alls var 7.471 íbúi búsettur á stofnanaheimili hinn 31. desember 2011 samkvæmt manntalinu sem Hagstofan tók þann dag. Flestir bjuggu á hjúkrunarheimilum og heimilum fyrir aldraða, eða 3.853, en 2.545 voru búsettir í námsmannaíbúðum. Alls voru 812 búsettir á heimilum fyrir fatlað fólk, en 261 með búsetu í annars konar stofnunum.