Alls greindust 75 manns með COVID-19 innanlands síðastliðinn sólarhring. Þar af voru 60 í sóttkví við greiningu eða 80% nýrra tilfella. 64 sjúklingar liggja nú inni á spítala vegna COVID-19. Þar af eru fjórir á gjörgæsludeild og fjölgar um tvo frá því gær.
Samkvæmt upplýsingum frá covid.is eru tæplega þúsund manns í einangrun, þá eru meira en 1.600 manns í sóttkví.
Hlutfallsleg aukning tilfella er mest á Norðurlandi eystra þar sem þeim fjölgar um 28 eða rúmlega helming. Eru nú 79 greind tilfelli í landshlutanum.
Sóttvarnalæknir hefur skilað inn tillögum um hertar sóttvarnaraðgerðir til heilbrigðisráðherra. Hefur ríkisstjórnin boðað til blaðamannafundar klukkan 13 í dag þar sem þess má vænta að aðgerðir verði kynntar.