Heildarfjárfesting fyrirtækisins Alvotech vegna þróunar líftæknilyfja og uppbyggingar á Íslandi er um 75 milljarðar króna, en fyrirtækið þarf að bæta við sig 40 nýjum starfsmönnum á næstu mánuðum.
Þetta kemur fram í Morgnblaðinu í dag, en þar segir að þegar lyfin verða öll komin á markað verða árstekjur syturfyrirtækjanna Alvotech og Alvogen á heimsvísu um 100 milljarðar króna.
Róbert Wessmann, stjórnarformaður Alvotech segir við blaðið að spennandi tímar séu framundan og miklar væntingar uppi. Fjöldi nýrra hátæknistarfa skapist og sex lyf séu núna í þróun hjá fyrirtækjunum.
Gert er ráð fyrir að með tilkomu hátækniseturs Alvotech í Vatnsmýrinni muni skapast allt að 300 störf til viðbótar við þau 40 sem nú eru að bætast við, en áætlað er að fyrirtækið flytji starfsemi sína þangað næsta vor.