Um 7200 skjöl bíða nú þinglýsingar hjá sýslumanni og er líklegt að góður meirihluti þeirra varði fasteignaviðskipti, en í dag er 45. dagur verkfallsaðgerða hjá lögmönnum sýslumannsembættisins sem heyra til Bandalags háskólamanna.
Verkfall lögfræðinga hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu hefur gert það að verkum að ekki er lengur hægt að ganga frá alls kyns opinberum skiptum, gjaldþrota- eða skiptum dánarbúa, skilnuðum, hjónavígslum og síðast en ekki síst þinglýsingum lánasamninga sem þar með stöðva gjaldflæði í fasteignaviðskiptum.
Ingibjörg Þórðardóttir formaður Félags fasteignasala segir í Fréttablaðinu í morgun að dæmi séu um að fólk hafi lent í talsverðum hremmingum í fasteignakaupum, svo sem vegna þess að standa uppi húsnæðislaust þegar það hafi þurft að yfirgefa fyrra húsnæði á umsömdum tíma, en fái ekki nýja eign afhenta vegna verkfallsins. Þá séu vaxtagreiðslurnar í sumum tilvikum viðbótarkostnaður sem fólk hafði ekki gert ráð fyrir, en algengt sé að fólk semji um sex prósenta vexti á greiðslur sem tefjist sem jafngildi lægstu Seðlabankavöxtum.