72% fjölgun starfa í ferðaþjónustu

Um það bil 7,500 ný störf hafa skapast í ferðaþjónustunni síðasta hálfa áratuginn að því er fram kemur í nýjum mælingum Hagstofu Íslands - og er þetta mesta fjölgun í greininni á fimm ára tímabili frá upphafi mælinga.

Miðað er við alþjóðlega skilgreiningu starfa í ferðaþjónustu - og vekur athygli að aukningin er meiri en sem nemur fjölda starfsfólks í mörgum öðrum atvinnugreinum. Í Morgunblaðinu í dag er bent á samnburð við orkufrekan iðnað þar sem 1,900 manns starfa, við fiskveiðar þar sem 4,400 manns vinna og fiskvinnslu hvar 4,700 eru við vinnu. 

Í júlímánuði voru 21,400 manns starfandi við ferðaþjónustu, sem er 72% fleiri en í júní 2009.

Böðvar Þórissin, skrifstofustjóri fyrirtækjasviðs segir við blaðið í dag að í reynd starfi fleiri í greininni en mælingar nái yfir vegna eðli hennar - og megi vísast bæta 15% við þær tölur sem Hagstofan hefur birt.