700 tonna kvóti burt

Skráður kvóti í Grímsey var 2.900 tonn í upphafi fiskveiðiársins en nú hefur útgerðarfélagið Borgarhöfði ehf. í eynni selt allan kvóta sinn, alls um 700 þorskígildistonn í krókaaflamarkskerfinu, og annan af tveimur bátum, til Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði.

Fiskifréttir segja frá þessu í dag en í gær fréttist af sölunni.

Báturinn sem seldur var hét Gyða Jónsdóttir EA en heitir nú Hafrafell SU. Jóhannes Henningsson útgerðarmaður segir að reynt hafi verið til þrautar að ná samkomulagi við viðskiptabanka félagsins, Íslandsbanka um niðurfellingar á gengistryggðum lánum .

Á vef Fiskstofu má sjá að úthlutaður kvóti til skipa með heimahöfn í Grímsey í upphafi yfirstandandi fiskveiðiársins nam 1.445 þorskígildistonnum í aflamarkskerfinu og 1.453 tonn í krókaaflamarkskerfinu.