700 milljóna sparnaður af nýju húsi

Forráðamenn Landsbankans, sem er að meginhluta í eigi ríkisins, segja að nýjar ríflega 16 þúsund fermetra höfuðstöðvar hans við hliðina á Hörpu muni draga verulega úr rekstrarkostnaði bankans.

Ráðgert er að hefja smíði hússins á næsta ári og að það rísi hratt, enda áætlað að bankinn verði fluttur inn í bygginguna strax árið eftir. Steinþór Pálsson bankastjóri segir að núverandi staða í húsnæðismálum bankans sé óboðleg, en nú sé starfsemi hans dreifð um alla borg í samtals nærri 30 þúsund fermetra húsakosti sem sé misjafn að gæðum. Við það að flytja starfsemina í nærfellt helmingi minna húsnæði á einum stað fáist gríðarleg hagræðing í rekstri bankans sem hann metur ekki undir 700 milljónum króna á ári.

Mjög hefur verið deilt á forkólfa bankans fyrir þennan ráðahag - og ríkisbankinn vændur um að fara sínu fram óháð aðstæðum í samfélaginu; brýnna sé að bjóða almenningi upp á betri lánakjör og þjónustu um allt land en að eyða háum fjárhæðum í glæsibyggingu. Meðal gagnrýnendanna hefur verið Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sem hefur ítrekað í þáttum Hringbrautar og víðar sagst undrast mjög þessa forgangsröðun í rekstri Landsbankans. 

Áætlaður kostnaður við byggingu höfuðstöðvanna beint sunnan við Hörpu verði átta milljarðar króna.