Ég kem aftur, og aftur, og aftur…
Þannig hefst gáskafullur pistill hjá Össuri Skarphéðinssyni á eigin fésbók en hann lenti í þeirri óskemmtilegu lífsreynslu að fb-síðan hans var tekin niður í tæpan sólahring af hálfu stjórnenda facebook – án skýringa að því er virðist.
Össur hafði í frétt á Eyjunni velt upp hvort pólitískar skrímsladeildir hefðu tekið sig saman um að svipta hann tjáningarfrelsinu en það mun vera þannig að ef margir taka sig saman og kvarta undan facebook-síðu, getur eigandi forritsins ákveðið að loka síðunni tímabundið og getur tekið nokkra daga fyrir fólk að endurheimta eigin umræðuvettvang.
„Í gær var mér án mikilla serimónía hent út af Facebók. Í tæpan sólarhring voru öll ummerki um mig máð út af miðlinum. Reiðir vinir höfðu samband á smössum og spurðu af hverju ég hefði hent þeim út? Aðrir vildu vita af hverju ég hefði fjarlægt athugasemdir á síðum þeirra. Öll mín fótspor á miðlinum voru einfaldlega þurrkuð út. Ég gékk engar sérstakar skýringar. Þetta var svolítið óskemmtileg reynsla,“ skrifar Össur endurheimtur.
Það vekur gleði fb-vina að bloggarinn sé mættur til leiks á ný. Hátt í 700 manns hafa „lækað“ færsluna.
„Ég hellti vitaskuld úr skálum reiði minnar yfir þá gegnum hlekk sem Ásta pírati fann fyrir mig. Facebók sendi mér svo gamaldags tölvupóst rétt áðan þar sem Max hjá Community Operations sagði að Facebook væri „sorry for the inconvenience.“
Allt leiðir þetta hugann að stórri spurningu í höfði Össurar:
„Er það ekki einnar messu virði að velta fyrir sér að bandarískt stórfyrirtæki getur skrúfað fyrir helsta tjáningarform stjórnmálamanna í nútímanum? Á það að vera svoleiðis? Ættu löndin kannski að setja í lög að fyrirtæki sem starfrækja samskiptamiðla mættu undir engum kringumstæðum loka á tjáningu fólks sem berst fyrir mannréttindum eða er í stjórnarandstöðu án þess að fyrir því séu færð rök? Þessvegna um alla. – Hvað ef Facebook og aðrir samskiptamiðlar sem nú eru helstu vettvangar pólitískrar tjáningar og andófs lenda í höndum sem hafa minni virðingu fyrir lýðræði og tjáningarfrelsi en núverandi eigendur?“
Þannig spyr Össur Skarphéðinsson. Hjá þeim sem hentu honum út í kuldann en hafa nú tendrað fésbókarylinn á ný fyrir hinum tjáningarglaða stjórnmálamanni.