70% vilja taka við flerum en 50

Yfir 70% landsmanna vilja taka á móti fleiri flóttamönnum en 50 á næstu tveimur árum, en það var sú tala sem ríkjandi stjórnvöld voru tilbúin til að taka við á þeim tíma. 

Þetta kemur fram í óformlegri skoðanakönnun sem verið hefur á forsíðunni á hringbraut.is síðustu daga, en þar var spurt: Hvað á Ísland að taka á móti mörgum flóttamönnum sem nú flýja stríðsátök og hungur á næstu tveimur árum?

19% þátttakenda, sem voru vel á þriða hundrað, kváðust ekki vilja taka á móti einum einasta flóttamanni, eða fimmtungur fólks sem svaraði í könnuninni, 8% vildu taka á móti 50 manns, 50% vildu taka á móti 500 manns, 11% á móti 1000 manns og sama prósenta á móti 2000 manns. 

Mikil umræða hefur skapast í samfélaginu síðustu daga um hvað Íslendingar eigi að taka á móti mörgum flóttamönnum sem lifa flestir hverjir vip skelfilegar aðstæður í heimaríkjum sínum, einkanlega Sýrlandi, þaðan sem flestir þeir flóttamenn eru sem nú streyma til Evrópu, en talð er að af 22 milljónum Sýrlendinga séu nú nærrri 14 milljónir á vergangi, innan lands sem utan.