Um 70 konur koma fram á einum og sömu tónleikunum í dag í tilefni af 40 ára afmæli Kvennafrídagsins. Tónleikarnir fara fram í Akureyrarkirkju. Á efnisskrá verður aðeins tónlist eftir konur og tónlist sem konur hafa flutt ógleymanlega.
Fram koma Helga Kvam, píanó, Kristjana Arngrímsdóttir, söngur, Lára Sóley Jóhannsdóttir, söngur og fiðla og Þórhildur Örvarsdóttir, söngur.
Sérstakir gestir tónleikanna verða Ragnheiður Gröndal, söngur og píanó, Kvennakór Akureyrar undir stjórn Daníels Þorsteinssonar, Margrét Arnardóttir, harmonika og Ella Vala Ármannsdóttir, horn og kornett.
Tónleikarnir hefjast kl. 17.00.