70% íbúða í sumum götum borgarinnar eru leigðar á airbnb

 Í dag birti Dr. Anne-Cécile Mermet, borgarlandfræðingur og lektor við Sorbonne háskóla í París, ítarlega rannsókn sem hún framkvæmdi fyrir hönd Höfuðborgarstofu. Í henni kemur fram að fjöldi skráðra eigna á Airbnb hefur margfaldast undanfarin ár. Um 60% af öllum skráðum Airbnb íbúðum landsins eru í 101 Reykjavík eða næsta nágrenni. Sumar götur í Reykjavík eru með 70% af öllum íbúðum í þeim skráðar á Airbnb. Skráðum eignum fjölgaði hratt á Airbnb. Árið 2016 voru 2032 eignir skráðar á Airbnb en árið 2018 voru þær orðnar 4154. 

Í rannsókninni kom fram að leigusalar er ekki einsleitur hópur með einsleit markmið eða viðskiptaaðferðir og áhrifin eftir því ólík. Á meðan sum viðskiptamódel hafa fært eignarhald frá heimilum til fjárfesta og viðskipta, hafa önnur hjálpað íbúum að halda í heimili sín og/eða eiga fyrir lífsnauðsynjum. Ein af megin niðurstöðum rannsóknarinnar er sú að Airbnb og stuttir leigusamningar virðast þó frekar ýta undir félagslegan ójöfnuð. Starfsemin getur skapað fjárhagsleg tækifæri fyrir þá sem þegar eiga eignir og þannig treyst enn betur stöðu þeirra á húsnæðismarkaði. Hins vegar eru afleiðingarnar minna framboð og hærra verð sem gerir þeim sem eru á höttunum eftir að eignast heimili til kaups eða leigu erfiðara fyrir.